



X-Smart Pro+ Endo mótor
Ekki til á lager
X-Smart® Pro+ er rafdrifinn endó mótor frá Dentsply Sirona, hannaður fyrir meðferð rótarganga. Tækið er ætlað til daglegrar notkunar þar sem þörf er á góðri stjórn og skýru vinnuflæði.
Mótorinn býður upp á bæði samfellda snúninga og gagnsnúna hreyfingu, sem gerir kleift að vinna með mismunandi kerfum frá framleiðanda. Tog og snúningshraði eru stillanleg eftir þörfum hverrar meðferðar, sem gefur betri stjórn á vinnunni.
Innbyggður apex mælar lengd rótargangs í rauntíma á meðan vinnu stendur sem einfaldar vinnuferlið og dregur úr þörf á að Skipta þurfi milli tækja við mælingar og mótun.
Snertiskjár sýnir helstu stillingar á skýran hátt og gerir auðvelt að velja fyrirfram skilgreind prógramm sem hentar hverri meðferð. Hugbúnaður tækisins er uppfæranlegur, sem gerir mögulegt að laga það að nýjum lausnum þegar uppfærslur eru í boði.
X-Smart® Pro+ er Hannað með áherslu á einfalt viðmót og góða yfirsýn, sem nýtist vel í daglegri klínískri vinnu.





